Fara í efni

Ólögleg fæðubótarefni sem innihalda lyf við ristruflunum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hafa nýverið borist upplýsingar frá Spænsku Lyfjastofnuninni (Agencia Española de Medicamentos y Productos Sanitarios, AEMPS) í gegnum viðvörunarkerfi Lyfjastofnunar um niðurstöður efnagreininga á nokkrum fæðubótarefnum. Allar vörurnar eru markaðssettar sem kynörvandi fæðubótarefni og/eða sem fæðubótarefni sem lausn/hjálp við ristruflunum.  Vörurnar reyndust allar innihalda virk lyfjaefni, í flestum tilfellum tadalafil, sildenafil eða sildenafil hliðstæður (analogue) án þess að efnanna sé getið á umbúðum varanna.  Ein varanna innihélt lyfjaefnið Phentolamine sem m.a. hefur verið notað við getuleysi.  Samkvæmt innihaldslýsingum innihalda vörurnar mismunandi blöndur af jurtum.

Sildenafil og tadalafil eru virk lyfjaefni í lyfseðilsskyldum lyfjum hér á landi eins og Viagra og Cialis sem ætluð eru við ristruflunum.  Efnið Phentolamine er einnig skilgreint sem lyf.  Lyfjaefni sem þessi ætti aldrei að nota nema í samráði við lækni, í formi lyfja sem hafa markaðsleyfi, þar sem þau geta verið skaðleg heilsu séu þau ekki notuð á réttan hátt.  Vara/fæðubótarefni sem inniheldur þessi lyfjaefni telst hættulegt matvæli, sérstaklega þegar efnanna er ekki getið á umbúðum varanna.



Skv. 11. gr. matvælalaga er innflutningur og dreifing matvæla þ.m.t. fæðubótarefna sem innihalda lyf eða lyfjavirk efni, óheimil.  Auk þess er skv.8.gr. matvælalaga óheimilt að markaðssetja matvæli sem eru ekki örugg til neyslu þ.e. heilsuspillandi.  Umræddar vörur eru því ólöglegar til innflutnings og markaðssetningar.

Meðfylgjandi er listi yfir vöruheitin:

  • Passion Power
  • Maxidus
  • Arize
  • Viaplus
  • Durafit
  • Erectra
  • Natural Power for men
  • Natural Vital
  • Amorex herbal coffee
  • Revit UP


Fæðubótarefni eru matvæli sem almennt eru í frjálsu flæði til landsins og því fyrst og fremst undir markaðseftirliti.  Eftirlit með fæðubótarefnum á markað er í höndum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.  Innflutningseftirlit er í höndum MAST og síðustu ár hefur innflutningseftirlit með fæðubótarefni verið talsvert aukið. 


Samkvæmt reglugerð um fæðubótarefni er innlendum framleiðanda/innflytjanda skylt að tilkynna innflutning/markaðssetningu nýrra fæðubótarefni til MAST.  Viðkomandi vörur hafa ekki verið tilkynntar til MAST og hefur stofnunin því ekki upplýsingar að vörurnar séu á almennum markaði hér á landi.  Hinsvegar eru vörurnar allar eða hafa verið til sölu í póstverslun í gegnum internetið. MAST hefur gert heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga viðvart um umræddar vörur og beinir því til neytenda að hafa samband við viðkomandi heilbrigðiseftirlit hafi þeir upplýsingar um vörurnar á innlendum markaði.


Matvælastofnun hvetur fólk til að kaupa ekki vörurnar eða neyta þeirra þar sem þær geta verið hættulegar heilsu fólks.



Getum við bætt efni síðunnar?