Of mikið kadmíum í áburði Húsasmiðjunnar
Frétt -
05.06.2012
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Við reglubundið eftirlit Matvælastofnunar með áburði kom í ljós að áburðartegundin Garðablámi, sem Húsasmiðjan flytur inn, reyndist innihalda tvöfalt meira kadmíum en leyfilegt er hérlendis. Niðurstöður efnagreininganna bárust 4. júní. Hámarksinnihald kadmíums er 50 mg á hvert kg fosfórs til að forðast uppsöfnun þess í jarðvegi. Húsasmiðjan hefur tekið áburðinn úr sölu í verslunum sínum í samræmi við kröfur Matvælastofnunar.
Um 50 tonn af þessum áburði voru flutt inn í vor. Samkvæmt yfirlýsingu frá framleiðanda átti kadmíum í áburðinum að vera innan við leyfilegt hámark.
Þeir sem keypt hafa þennan áburð geta skilað honum til Húsasmiðjunnar.