Fara í efni

Nýtt riðutilfelli í Skagafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Álftagerði í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Síðast greindist riða á þessu svæði í september síðst liðinn á bænum Vallanesi. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.

Riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum þar sem nú eru um 370 fjár. Bóndinn hafði samband við héraðsdýralækni vegna kindanna sem sýndu einkenni riðuveiki. Kindurnar voru aflífaðar og sýni tekin og send á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum þar sem riðuveiki var staðfest í báðum sýnum. 

Búið er í Húna- og Skagahólfi og í því hólfi hefur riðuveiki komið upp á átján búum á undanförnum 20 árum en á þessu búi greindist veikin síðast árið 2008. Riðuveiki hefur komið upp á mörgum bæjum í Varmahlíð í gegnum tíðina og má segja að um þekkt riðusvæði sé að ræða.

Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu en á síðasta árigreindist eitt tilfelli. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014. Riðan er því á undanhaldi en þetta sýnir að ekki má sofna á verðinum. 

Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjúþúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna. 

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttekt á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.

Fjöldi bæja þar sem hefðbundin riðuveiki hefur verið staðfest á árunum 1987-2019

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?