Fara í efni

Ný gjaldskrá Matvælastofnunar

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað nýja gjaldskrá Matvælastofnunar (MAST). 

Við gerð gjaldskrárinnar var haft að leiðarljósi að ná auknu gegnsæi og skýrleika við gjaldtöku MAST. Gjaldskráin byggir á  kostnaðargreiningu sem unnin var í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið KPMG auk þeirra kostnaðarþátta sem Matvælastofnun er heimilt að innheimta raunkostnað fyrir. Einnig var lögð áhersla á að hægt yrði að fylgjast reglubundið með kostnaði í síbreytilegu rekstrarumhverfi þar sem umfang þjónustuverkefna og áherslur í eftirliti breytast ört og tækniframfarir eru tíðar. 

Til hagræðingar fyrir þjónustuþega stofnunarinnar hefur gjaldskráin verið talsvert einfölduð frá þeirri fyrri, gjaldliðum er fækkað úr sjötíu í tvo. 

Gjaldskráin verður innleidd í þrepum og endurskoðuð árlega.


Getum við bætt efni síðunnar?