Fara í efni

Norrænn fundur um sýklalyfjaþol

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Útbreiðsla sýkla í dýrum, mönnum og umhverfi með þol gegn sýklalyfjum er stöðugt að aukast. Í síðustu viku funduðu Norrænir sérfræðingar á þessu sviði hér á landi um þetta mál. Skipulagning fundarins var í höndum starfsfólks Matvælastofnunar, Tilraunastöðvar HÍ að Keldum og sýkladeildar Landspítalans. Staða þessara mála á Norðurlöndunum er tiltölulega góð samanborið við ýmis önnur lönd en nauðsynlegt er að auka rannsóknir sem gætu stuðlað að enn skilvirkari aðgerðum gegn sýklalyfjaþolnum bakteríum.

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur bent á að vaxandi sýklalyfjaþol baktería sé ein helsta ógn lýðheilsu í heiminum. Aukin úbreiðsla sýklalyfjaþolinna baktería veldur því að erfiðara verður að meðhöndla sýkingar í mönnum og dýrum. Með auknum ferðalögum fólks og flutningi á dýrum og matvælum milli landa eykst hætta á útbreiðslu sýklalyfjaþolinna baktería.

Vinnuhópur á vegum Norræna ráðherraráðsins héld sinn annan fund hér á landi, þar sem rædd voru mögulegar aðgerðir gegn útbreiðslu sýklalyfjaþolinna baktería. Fyrsti fundur hópsins var haldinn fyrir rúmlega ári síðan, í Gautaborg í Svíþjóð. Á þeim fundi var ákveðið að í framtíðinni skuli fundir haldnir árlega og að í þeim skuli taka þátt bæði sérfræðingar á sviði lýðheilsu og heilbrigði dýra, með hliðsjón af hinu svonefnda „One Health“ sjónarmiði. Samvinna milli þessara sviða er lykill að því að ná árangri í þessu tilliti.

Fundurinn hófst með því að staða rannsókna á öllum Norðurlöndum var kynnt sem og upplýsingar um aðgerðir  gegn sýklalyfjaþoli í hverju landi. Áhersla var lögð á mikilvægustu sýklalyfjaþolnu bakteríurnar MÓSA (methicillin ónæmir Staphylococcus aureus) og ESBL myndandi E. coli. Síðan voru framtíðaraðgerðir ræddar. Úr niðurstöðum rannsókna má lesa að sýklalyfjanæmi baktería á Norðurlöndunum er tiltölu gott samanborið við önnur lönd. Þrátt fyrir það má gera betur og nauðsynlegt er að vera á varðbergi. Bakteríur geta helst myndað sýklalyfjaþol við ógætilegri og óhóflegri notkun sýklalyfja. Þess vegna er afar mikilvægt að nota sýklalyf skynsamlega, bæði í dýrum og mönnum. Það ber líka að forðast mengun umhverfisins með sýklalyfjum.

Fulltrúar allra Norðurlandanna voru sammála um að nauðsynlegt sé að kortleggja smitleiðir sýklalyfjaþolinna baktería, til að geta einbeitt sér að þeim aðgerðum sem mestar líkur eru á að skili árangri.


Getum við bætt efni síðunnar?