Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur
Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. nóvember 2014 skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 140 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.
Alls bárust Matvælastofnun 6 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu = 4
- Fjöldi gildra tilboða um kaup = 2
- Greiðslumark sem boðið var fram = 189.917 lítrar.
- Greiðslumark sem óskað var eftir = 112.404 lítrar.
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 48.654 lítrar.
- Kauphlutfall viðskipta er 43.28 %
Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2014. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 140 kr/l.
Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði né jafnvægismagni.
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 140,- kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt.
Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. september 2014 sýnir eftirfarandi:
- að framboð er nú 80,5 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
- að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 674,5 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
- að verð á greiðslumarki nú er 40 krónum lægra en það var á markaði þann 1. september 2014