Fara í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. nóvember 2013 hefur komið fram jafnvægisverð á markaði  krónur 320 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 42 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 15 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 27
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 1.034.438 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 1.067.714 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 874.438 lítrar
  • Kauphlutfall viðskipta er 93,85%

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2013. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 320 kr/l. 

Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 320 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur. 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  320,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2012 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 145,3 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 40,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
  • að verð á greiðslumarki nú er það sama og á markaði þann 1. apríl 2013.

Ítarefni

Frétt uppfærð 08.11.13


Getum við bætt efni síðunnar?