Fara í efni

Matvælastofnun varar við neyslu kjöts og spiks af grindhval

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Fullorðnir skulu borða mest eina máltíð* af kjöti af grindhval og spiki á mánuði samkvæmt færeyskum ráðleggingum. Konur sem stefna á að verða ófrískar innan næstu þriggja mánaða, eru ófrískar eða hafa barn á brjósti ættu ekki að borða kjöt af grindhval. Stúlkur og konur ættu alfarið að forðast neyslu grindhvalsspiks svo lengi sem þær hafa hug á að eignast börn í framtíðinni. Lifur og nýru grindhvals skal aldrei borða.

Í kjölfar hvalreka í síðustu viku hafa fyrirspurnir borist Matvælastofnun um hvort ekki megi nýta afurðir grindhvala til manneldis, þegar ekki tekst að bjarga þeim á flot aftur.

Grindhval hefur ekki rekið oft á Íslandsstrendur en í Færeyjum hefur verið hefð fyrir veiði og nýtingu á grindhval. Matvælastofnun leitaði því til Heilsufrøðiliga Starvsstovan í Færeyjum (matvælastofnun Færeyja) varðandi ráðleggingar til almennings um nýtingu afurða grindhvala.

Á síðustu árum hafa verið gerðar nokkrar rannsóknir á aðskotaefnum í fæðu Færeyinga og áhrif neyslu þeirra á heilsu og þroska. Hópar alþjóðlegra sérfræðinga hafa farið yfir niðurstöðurnar og uppfært ráðleggingar um hve mikil inntaka af þessum efnum með mat er talin örugg. Fyrir 2011 voru ráðleggingarnar byggðar á magni kvikasilfurs í afurðum grindhvals, en ráðleggingar sem gefnar voru út árið 2011 og eru birtar hér að ofan taka einnig mið af magni díoxíns og díoxínlíkra PCB efna. 

*Ein máltíð er reiknuð sem 250 g af kjöti og 50 g af spiki, hrátt og óunnið.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?