Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni
Frétt -
18.04.2008
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Eftirlitsdýralæknir í Suðurlandsumdæmi
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni á umdæmisskrifstofu Suðurlandsumdæmis. Um fullt starf er að ræða frá og með 15. maí 2008.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Katrín Andrésdóttir, héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis (katrin.andresdottir@mast.is) í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum dýralæknir Suðurlandi eða á mast@mast.is . Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2008. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.