Fara í efni

Kúabóndi sviptur mjólkursöluleyfi

Nýlega svipti Matvælastofnun kúabónda á Suðurlandi leyfi til framleiðslu og dreifingar á mjólk. Samkvæmt matvælalögum má fella slíkt leyfi úr gildi ef sá sem slíkt leyfi hefur gerist sekur um ítrekuð eða alvarleg brot á lögunum.

Mjólkurframleiðslan á þessum bæ reyndist óviðunandi og þrátt fyrir ítrekaðar kröfur um úrbætur varð bóndinn ekki við þeim.


Getum við bætt efni síðunnar?