Fara í efni

Innlausn á greiðslumarki mjólkur 1. nóvember 2018

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á fjórða innlausnardegi ársins 2018 fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. nóvember var greiðslumark 5 búa innleyst og 116 framleiðendur lögðu inn kauptilboð. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 122 krónur á lítra á árinu 2018 og annast Matvælastofnun innlausn greiðslumarks. Innlausn greiðslumarks mjólkur fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert.

Samkvæmt búvörusamningum, sem tóku gildi þann 1. janúar 2017, skulu framleiðendur sem teljast nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun hefur innleyst. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna skv. 10. gr. reglugerðar nr. 1181/2017 um stuðning við nautgriparækt og skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem óskað var eftir af framleiðendum í þeim hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

Á innlausnardeginum 1. nóvember innleysti Matvælastofnun, fyrir hönd ríksins, greiðslumark 5 framleiðenda samtals 175.850 lítra að upphæð 21.453.700 krónur. Matvælastofnun úthlutaði 43.963lítrum úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 43.963 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og loks 87.924 lítrum úr almennum potti. Tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 116 framleiðendum og var alls óskað eftir 2.152.844.999 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 49 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 24 framleiðendur. 


Getum við bætt efni síðunnar?