Fara í efni

Innköllun vegna tveggja ólöglegra lyfja í fæðubótarefnum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun á sölu og innköllun úr verslunum eftirfarandi vöru: 

Varan inniheldur valerian root extract (Valeriana officinalis) og St. John's Wort extract (Hypericum perforatum) sem fengið hafa B-flokkun hjá Lyfjastofnun.

  

Vöruheiti:  StressCaps. 
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  Varan er framleidd af FoodCaps ltd., Frakklandi.  Innflutt til Íslands af Functional Food Products ehf./Vzell ehf., Reykjavík. 
Auðkenni/skýringartexti:  StressCaps inniheldur valerian root extract (Valeriana officinalis) og St. John's Wort extract (Hypericum perforatum) sem fengið hafa B-flokkun hjá Lyfjastofnun.  Þessi flokkun þýðir að vara með þessum innihaldsefnum getur fallið undir lyfjalög.  Leiki vafi á því hvort einstök efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.  Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við vöruna. 
Laga- /reglugerðarákvæði:  1. mgr. 11. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. 
Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Sportlífs Holtagörðum og Glæsibæ.  Varan er ekki lengur í dreifingu.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?