Fara í efni

Innköllun vegna ólöglegra lyfja í fæðubótarefnum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun á sölu og innköllun úr verslunum eftirfarandi vöru:


Varan inniheldur valerian root powder (Valeriana officinalis) sem fengið hefur B-flokkun hjá Lyfjastofnun.

Vörumerki:  BioTech USA.
Vöruheiti:  Vitamin B-Complex 75 Complete Diatery Supplement with Antioxidants and Herbs.
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  Varan er framleidd fyrir BioTech USA í Bandaríkjunum.  Innflutt til Íslands af Heilsusporti ehf. (Sportlífi), Síðumúla 1, 108 Reykjavík.
Auðkenni/skýringartexti:  Vitamin B-Complex 75 Complete Diatery Supplement with Antioxidants and Herbs inniheldur valerian root powder (Valeriana officinalis) sem fengið hefur B-flokkun hjá Lyfjastofnun.  Þessi flokkun þýðir að vara með þessu innihaldsefni getur fallið undir lyfjalög.  Leiki vafi á því hvort einstök efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.  Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við vöruna.
Laga- /reglugerðarákvæði:  1. mgr. 11. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Áætluð dreifing innanlands:  Verslanir Sportlífs (vefverslun og verslanir fyrirtækisins í Glæsibæ og Holtagörðum).


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?