Hátt magn alkalóíða í kamillutei
Frétt -
29.08.2018
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á REMA 1000 lífrænu kamillutei vegna alkalóíða. Í eftirlitsverkefni í Danmörku greindist mjög hátt magn af pyrrólizdín alkalóíðum í einni tegund af kamillutei, trúlega vegna íblöndunar með krossfífli.
Upplýsingar um innköllun bárust Matvælastofnun frá Danmörku í gegnum RASFF evrópska hraðviðvörunarkerfið um hættuleg matvæli á markaði. Teið var selt í verslunum Víðis frá haustinu 2017 þar til fyrirtækið hætti starfsemi í sumar.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
- Vöruheiti: Rema 1000 økologisk kamillete
- Framleiðandi: Whole company A/S, DK.
- Þyngd: Nettoindhold: 25 breve
- Best fyrir dagsetning: 17/10/19, 26/10/19, 15/11/19, 29/11/19, 05/12/19, 03/01/20.
- Lotunúmer: 3017, 3417, 3517, 3717.
- Strikamerki: 5705830003294
- Innflutningur/dreifing: Selt í verslunum Víðis.
Mikil neysla á tei sem inniheldur hátt magn af alkalóíðum getur m.a. valdið lifrarskemmdum. Neytendur eru hvattir til að neyta ekki þessarar vöru og henda henni.