Fara í efni

Hætta á skelfiskeitrun í Breiðafirði og Hvalfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Vöktun Hafrannsóknastofnunar og MAST á eitruðum svifþörungum í Breiðafirði við Flatey og Stykkishólm og í Hvalfirði við Hvammsvík hefur leitt í ljós að magn eitraðra svifþörunga er yfir viðmiðunarmörkum.

 


  Ef magn eitraðra svifþörunga er yfir viðmiðunar-mörkum er veruleg hætta á að kræklingur og annar skelfiskur sé eitraður og óhæfur til neyslu. MAST varar við neyslu á skelfiski frá umræddum svæðum og er ástandið í Breiðafirði sérstaklega hættulegt vegna mikils magns Alexandrium þörunga sem valda lömunareitrun (PSP).  Í  Eyjafirði við Hrísey eru Pseudonitzschia þörungar yfir viðmiðunarmörkum en þeir geta  valdið ASP þörungaeitrun í skelfiski. Sýni af krækling hafa verið send til greiningar á ASP  og er beðið eftir niðurstöðum.

Niðurstöður vöktunar má sjá hér. Neytendur eru hvattir til að kynna sér niðurstöður vöktunar á eitruðum þörungum ef þeir hyggjast tína skelfisk á umræddum svæðum.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?