Fara í efni

Grunur um salmonellu-smit í kjúklingi.

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Grunur um salmonellu-smit í kjúklingi.


Matvælastofnun hafa borist upplýsingar frá Matfugli ehf um að upp hafi komið grunur um salmonellu-smit í kjúkling,  framleiddum af fyrirtækinu.
Í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins hefur dreifing verið stöðvuð og unnið að innköllun vörunnar.
Eingöngu er um ræða kjúkling og hluta hans með rekjanleikanúmerinu:  011-17-38-3-07
Dreifing vörunnar er um allt land.
Þeir sem hafa keypt kjúkling eða hluta hans, með ofangreindu rekjanleikanúmeri,  eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða til Matfugls ehf,  Völuteigi 2,  270 Mosfellsbæ.


Nánari upplýsingar hjá Matfugli ehf í síma:   412-1400.


Fréttatilkynning frá Matfugli 
Mosfellsbær, 27.10.2017.


Komið hefur upp grunur um salmonellu smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna. 
Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu 011-17-38-3-07.


Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins er unnið að innköllun vörunar.


Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.


Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir áprentuðum leiðbeiningum um eldun kjúklinga, sem finna má á umbúðum. Steiki kjúklinginn í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra matvöru.


ATH innköllunin á eingöngu við um kjúkling með þessu tiltekna rekjanleikanúmeri. 


Nánari upplýsingar hjá Matfugli í s. 412-1400



Getum við bætt efni síðunnar?