Fara í efni

Göt á sjókví Arctic Sea Farm við Kvígindisdal í Patreksfirði

Síðastliðinn sunnudag 20. ágúst tilkynnti fyrirtækið Arctic Sea Farm um tvö göt á kví nr. 8 á eldissvæði sínu við Kvígindisdal í Patreksfirði. Götin voru um 20 x 30 cm að stærð og á um tveggja metra dýpi og hlið við hlið. Á þessum tíma voru rúmlega 70.000 fiskar í kvínni um 5.5 kg að meðalþyngd.

Viðbragðsáætlun fyrirtækisins var virkjuð strax og götin uppgötvuðust.

Fiskistofa fer með stjórnun veiða á strokufiski og voru lögð net við kvínna, en enginn fiskur kom í þau net. Í framhaldi hóf Fiskistofa leit með dróna og sá fiska í Ósá í botni Patreksfjarðar. Lögð voru net  í Ósá og einnig í sjó nálægt ósi árinnar. Veiddust fjórir fiskar í netin og báru þeir allir merki um að eldisfiskar væru þar á ferð. Fiskarnir verða afhentir Hafrannsóknarstofnun í dag til erfðagreininga og frekari rannsókna.  Fiskistofa hefur óskað eftir því að netum verði fjölgað í Patreksfirði og að áfram verði reynd netaveiði í sjó um helgina.

Matvælastofnun hóf strax rannsókn á málinu og stendur sú rannsókn enn yfir. Rannsókn stofnunarinnar miðar að því að finna út ástæðu fyrir götunum, fjölda fiska sem hafa strokið og einnig að kanna hvort innri gæðaferlum fyrirtækisins hafi verið fylgt í hvívetna.

Frekari upplýsingar verða veittar þegar rannsókn málsins lýkur.


Getum við bætt efni síðunnar?