Aðskotahlutur í pestó
Frétt -
28.09.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á Himneskt Lífrænu rauðu pestói vegna aðskotahlutar (glerbrots) sem fannst í einni krukku. Innflytjandinn, Aðföng, hefur innkallað lotu merkta með best fyrir dagsetningu í október 2022, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Einungis er verðið að innkalla neðangreinda lotu:
- Vörumerki: Himneskt
- Vöruheiti: Lífrænt rautt pestó
- Strikamerki: 5690350050692
- Nettómagn: 130g
- Best fyrir dagsetningar: Allar í október 2022
- Framleiðandi: La Dispensa di Campagna Srl, Toskana
- Framleiðsluland: Ítalía
- Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík
- Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaups um land allt
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 og á netfanginu gaedastjori hjá adfong.is.