Fara í efni

Förgun nautgripa vegna aðgangs að kjötmjöli

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í lok síðustu viku voru 110 nautgripir færðir af bænum Eystri-Grund við Stokkseyri til aflífunar og förgunar að fyrirskipun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Nautgripirnir á bænum höfðu haft aðgang að óvörðum og götuðum sekkjum af kjötmjöli sem ætlað var að nota sem áburð.

Nautgripirnir hafa nú verið aflífaðir í sláturhúsi, sýni tekin og áhættuvefir sendir í brennslu. Afurðir dýranna verða ekki nýttar til manneldis og verður fargað.

Notkun kjötmjöls sem fóður eða til fóðurgerðar fyrir dýr sem alin eru til manneldis er bönnuð til að hindra að heilahrörnunarsjúkdómar berist í menn og dýr. Matvælastofnun lagði bann á markaðssetningu afurða og slátrun til manneldis og flutning gripa frá bænum í mars sl. og óskaði í kjölfarið eftir fyrirskipun ráðuneytisins um niðurskurð allra gripa sem höfðu haft aðgang að kjötmjölinu á býlinu.

Niðurstaða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um niðurskurð lá endanlega fyrir í lok júní eftir að kröfu eiganda gripanna um frestun réttaráhrifa hafði verið hafnað af hálfu ráðuneytisins.

Í framhaldi niðurskurðar mun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ákvarða bætur til umráðamanns gripanna.

Matvælastofnun þakkar öllum sem tóku þátt í aðgerðunum fyrir veitta aðstoð.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?