Fara í efni

Flutningi lamba yfir varnarlínu vísað til lögreglu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur óskað eftir lögreglurannsókn á meintum flutningi sauðfjár yfir Hvítá. Óheimilt er að flytja sauðfé yfir varnarlínur nema í sérstökum undantekningartilfellum að fengnu leyfi stofnunarinnar.

Grunur leikur á að bændur úr Hrunamannahreppi hafi sótt nokkra tugi lamba í sinni eigu sem komu í réttir í Biskupstungum í september 2019 og flutt yfir varnarlínu.

Tilgangur dýrasjúkdómalaga er m.a. að hindra útbreiðslu dýrasjúkdóma og vinna að útrýmingu þeirra. Samkvæmt þeim lögum ákveður ráðherra, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, hvaða varnarlínum skuli haldið við. Varnarlínur eru ákveðnar til að verja eftir föngum bústofn bænda fyrir dýrasjúkdómum.


Getum við bætt efni síðunnar?