Fara í efni

Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt – yfirferð umsókna lokið

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt vegna framkvæmda á árinu 2019 í samræmi við reglugerð um stuðning í nautgriparækt nr. 1260/2018. Umsækjendur geta nú nálgast svarbréf við umsókn sinni inni á Bændatorginu undir Rafræn skjöl > Bréf.

Alls bárust 150 umsóknir, en af þeim voru 41 ný umsókn og 109 framhaldsumsóknir fyrir framkvæmdum sem hófust 2017 eða 2018. Heildarkostnaður við framkvæmdir nautgripabænda sem veittur er stuðningur fyrir á árinu 2019 er um 6,8 milljarðar króna. Matvælastofnun hefur til úthlutunar kr. 204.619.950 samkvæmt fjárlögum ársins. Styrkhlutfall reiknast því um 3% af heildarkostnaði sem er sambærilegt við síðasta ár. Hæsti áætlaði styrkur er kr. 8.532.095 en lægsti styrkur kr. 35.759. Eins og fyrri ár kom til hlutfallslegrar skerðingar á framlög samþykktra umsókna í samræmi við 25. gr. reglugerðarinnar þar sem fjármunir dugðu ekki til að greiða hámarksstyrkhlutfall, sem er 40%.

Um fjárfestingastuðning í nautgriparækt er fjallað í VII. kafla reglugerðar um stuðning í nautgriparækt nr. 1261/2018. Fjárfestingastuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum, bættum aðbúnaði nautgripa og aukinni umhverfisvernd. Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur skv. reglugerð um velferð nautgripa nr. 1065/2014. Stuðningurinn er veittur vegna nýframkvæmda og/eða endurbóta á eldri byggingum og kom fyrst til úthlutunar árið 2017 eftir innleiðingu nýrra búvörusamninga.


Getum við bætt efni síðunnar?