Fara í efni

Fagsviðsstjóri leyfamála óskast í fiskeldisdeild

Markmið fiskeldisdeildar hjá Matvælastofnun er að stuðla að ábyrgu lagareldi og standa vörð um heilbrigði og velferð lagardýra. Traust, gagnsæi og fagleg umgjörð er lykilatriði til að greinin fái að vaxa og dafna í sátt við umhverfið og samfélagið.

Lagareldi er fjölbreytt atvinnugrein með mörgum undirgreinum, s.s sjókvíaeldi, landeldi, úthafseldi og þörungaeldi. Lagareldi á sér langa sögu á Íslandi en hefur vaxið hratt síðasta áratuginn, fyrst og fremst í sjókvíaeldi á laxi.

Til að ná háleitum markmiðum þarf frábæra liðsheild fiskeldisdeildar Matvælastofnunar viljum við fá í okkar hóp metnaðarfullan og skapandi einstakling sem hefur áhuga á að þróa framtíð lagareldis.

Hjá Matvælastofnun munu gefast ótal tækifæri til að móta og skapa framtíð í fiskeldisdeild sem ætlar sér að vera leiðandi í verkefnamiðuðu vinnulagi og árangursdrifinni nálgun á viðfangsefni.

Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnsla umsókna um rekstrarleyfi
  • Útgáfa rekstrarleyfa
  • Úrvinnsla gagna og miðlun niðurstaðna
  • Aðkoma að uppbyggingu og stefnumótun fiskeldisdeildar
  • Samskipti við hagaðila á sviði fiskeldis
  • Önnur tilfallandi verkefni fiskeldisdeildar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Mikil reynsla af leyfamálum í fiskeldi skilyrði
  • Nákvæmni, frumkvæði, lausnarmiðuð nálgun og sjálfstæði í starfi
  • Geta til að vinna undir álagi, þrautseigja og aðlögunarhæfni
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði
  • Framúrskarandi tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Um er að ræða 100% starf fagsviðstjóra leyfamála fiskeldisdeildar Matvælastofnunar. Starfið er án staðsetningar á núverandi starfsstöðvum Matvælastofnunar. Umsækjendur gætu þurft að leysa verkefni í ráðningarferlinu. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf í september 2024. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Með umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum, tilnefning tveggja meðmælenda og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Sótt er um starfið á Starfatorgi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Matvælastofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar, karl.oskarsson@mast.is eða í síma 530 4800.

Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2024.


Getum við bætt efni síðunnar?