Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Benchmark Genetics Iceland hf. til fiskeldis að Kalmanstjörn, Reykjanesbæ

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Benchmark Genetics Icelnd hf. að Kalmanstjörn, Reykjanesbæ í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 4. júní 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 4. júlí 2021.

Benchmark Genetics Iceland hf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 190 tonna hámarkslífmassa til fiskeldis að Kalmanstjörn, Reykjanesbæ. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 2. júní 2021. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Benchmark Genetics Iceland hf. að Kalmanstjörn, Reykjanesbæ FE-1074 en starfsemin er með gilt starfsleyfi frá Umhverfisstofnun.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?