Fara í efni

Ekkert hrossakjöt fannst í nautakjötsafurðum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun tók þátt í samevrópsku eftirlitsverkefni varðandi rannsókn á nautakjötsafurðum á markaði til að kanna hvort þær innihaldi hrossakjöt án þess að þess sé getið á umbúðum. Álíka könnun var gerð árið 2013.

Sýnataka var framkvæmd í verslunum á höfuðborgarsvæðinu og veitingastöðum af Matvælastofnun í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dagana 16. og 18. júní 2014.

Tekin voru 10 sýni af nautakjötsafurðum. Tegundir afurða voru nautahakk, borgarar, lasagna, gúllas og pítubuff. Rannsóknin var gerð hjá Matís ohf.  Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ekkert hrossakjöt greindist í nautakjötsafurðunum.


Getum við bætt efni síðunnar?