Fara í efni

Eftirlitsdýralæknir í Gullbringu- og Kjósarumdæmi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni á umdæmisskrifstofu Gullbringu- og Kjósarumdæmis. Um fullt starf er að ræða.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Örn Guðmundsson, héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarumdæmis (gunnar.gudmundsson@mast.is) í síma 530-4800.  Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “eftirlitsdýralæknir” eða á mast@mast.is . Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2008.  Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.


Getum við bætt efni síðunnar?