Fara í efni

Eftirlitsdýralæknir á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra óskast í Norðvesturumdæmi

Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra í Norðvestur­umdæmi með aðsetur á Sauðárkróki eða vestar í umdæminu. Um 100% starf er að ræða en starfshlutfall getur þó verið sveigjanlegt sé þess óskað. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.

Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Helstu verkefni og ábyrgð

Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla, dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Einnig einhver aðkoma að opinberu eftirliti með dýravelferð og matvælaöryggi í sláturhúsum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Dýralæknanám frá viðurkenndum háskóla
  • Íslenskt dýralæknaleyfi
  • Reynsla af umgengni við búfé af öllum tegundum æskileg
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
  • Reynsla af opinberu eftirliti æskileg
  • Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku

Nánari upplýsingar

Frekari upplýsingar um starfið veitir Daníel Haraldsson, héraðsdýralæknir, á netfanginu daniel.haraldsson@mast.is eða í síma 530-4800. Sótt er um starfið á Starfatorgi.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.  


Getum við bætt efni síðunnar?