Fara í efni

Dýralæknar –sauðfjárslátrun

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða dýralækna tímabundið í heilbrigðiseftirlit við sauðfjárslátrun (kjötskoðun) næstkomandi haust á eftirtöldum stöðum:

  • Sláturhús SS á Selfossi u.þ.b. þrír mánuðir, september - nóvember
  • Sláturhús KAH á Hvammstanga, tveir mánuðir, september - október
  • Sláturhús SAH afurða á Blönduósi, tveir mánuðir, september - október
  • Sláturhús KS á Sauðárkróki, tveir mánuðir, september - október
  • Sláturhús Norðlenska á Húsavík, u.þ.b. sex vikur, september - október

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Jóh. Hannesson hjá Matvælastofnun í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Sauðfjárslátrun” eftir því sem við á, eða með tölvupósti á mast@mast.is.  Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2011. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.



Getum við bætt efni síðunnar?