Dauðar kanínur í Elliðaárdal
Frétt -
23.03.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun barst tilkynning um fjölda dauðra kanína í Elliðaárdal frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur í morgun, auk á annan tug ábendinga frá almenningi. Meindýraeyðir borgarinnar hirti 36 hræ í dalnum í gær og 15 til viðbótar í morgun.
Matvælastofnun sendi 10 hræ til sýnatöku og krufningar á Keldum í morgun til að rannsaka hvort smitsjúkdómur, eitrun eða annað hafi orðið dýrunum að bana. Niðurstöður rannsóknar verða birtar um leið og þær berast.