Breyting rekstrarleyfis Arctic Sea Farm í Patreks- og Tálknafirði
Matvælastofnun hefur breytt rekstrarleyfi Arctic Sea Farm hf. til fiskeldis í Patreks- og Tálknafirði (FE-1145). Matvælastofnun auglýsti tillögu að breyttu rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 20. apríl og var frestur til að skila inn athugasemdum til 18. maí 2022.
Breyting á rekstrarleyfinu heimilar stækkun á eldissvæðinu Kvígindisdal í Patreksfirði. Eldissvæðið Hvannadalur í Tálknafirði verður óbreytt. Hvíldartími eldissvæða verður eftir breytingu að lágmarki 90 dagar í stað 6 mánaða áður. Hámarkslífmassi rekstrarleyfisins (FE-1145) verður óbreyttur 7.800 tonn. Gildistími rekstrarleyfisins helst óbreyttur. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.
Framkvæmd fyrirtækisins er ekki matsskyld skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um breytingu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.