Fara í efni

Beiting og hámark dagsekta í dýraeftirliti

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á föstudag tók gildi ný reglugerð um beitingu og hámark dagsekta í opinberu eftirliti með velferð dýra. Reglugerðin byggist á lögum um velferð dýra, en Matvælastofnun hefur eftirlit með því að ákvæðum laganna sé framfylgt. Fram kemur í lögunum að stofnuninni sé heimilt að beita dagsektum sem þvingunaraðgerð gagnvart umráðamanni dýra, brjóti hann gegn ákvæðum laganna.

Samkvæmt reglugerðinni er stofnuninni heimilt að leggja á dagsektir að hámarki 100.000 kr. á dag. Þær gilda frá þeim degi sem þær eru ákvarðaðar og fram að þeim degi sem skyldu er fullnægt að mati stofnunarinnar. Þá segir í reglugerðinni að aðila sem ákvörðun um dagsektir beinast að skuli veittur sjö daga frestur til að koma að skriflegum andmælum áður en dagsektir eru ákvarðaðar. Útistandandi dagsektir falla niður ef umráðamaður dýra hefur bætt á fullnægjandi hátt úr aðstæðum og aðbúnaði dýra, að mati Matvælastofnunar, innan fimm virkra daga frá ákvörðun stofnunarinnar um dagsektir. Að öðrum kosti verða þær innheimtar með hefðbundnum innheimtuaðferðum.

Matvælastofnun hefur einnig heimild til að leggja á stjórnvaldssektir fyrir brot á lögum um velferð dýra. Stjórnvaldssektir eru refsing fyrir fullframið brot en dagsektir eru þvingunaraðgerð til þess að þvinga menn til að láta af ólöglegu athæfi. Umráðamenn dýra geta vænst þess að stofnunin muni beita þessari heimild til að þvinga umráðamenn dýra til uppfylla ákvæði laga um velferð dýra.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?