Fara í efni

Almenn viðvörun til neytenda - um váboð tilkynningar varðandi hættuleg fæðubótarefni

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Ár eftir ár berast Matvælastofnun váboð tilkynningar (e. Rapid alert notifications) frá ýmsum erlendum viðvörunarkerfum. Hérlendis berast váboð tilkynningar varðandi fæðubótarefni í gegnum viðvörunarkerfi Lyfjastofnunar þrátt fyrir að það kerfi sé gert til að vakta váboð vegna lyfja. Í yfirferð Lyfjastofnunar kemur oft í ljós að um fæðubótarefni sé að ræða en ekki lyf. Oftast er um að ræða falin lyfjavirk efni í vörum sem seljast sem fæðubótarefni. Þar sem þessara lyfjavirku efna er ekki getið í innihaldslýsingu fæðubótarefnanna er neytandinn í hættu og því ber að varast þau.

Það sem af er ári hefur Matvælastofnun fengið 8 váboð í gegnum viðvörunarkerfi Lyfjastofnunar en þau sýna aðeins lítið brot af tilkynntum vörum (sjá undir ítarefni). Vörurnar sem oftast koma við sögu eru markaðssettar sem kynörvandi fæðubótarefni eða sem lausn eða hjálp við ristruflunum (e. dietary supplements for male sexual enhancement) og fæðubótarefni fyrir þyngdartap (e. Dietary supplement for weight loss). Vörur eins og þessar er yfirleitt einungis hægt að fá í netverslun eða á samfélagsmiðlum og oftast eru þær auglýstar sem náttúrulegar jurtavörur með „stórum loforðum“ um lausn á viðkomandi vandamáli. Efnagreining leiðir oft í ljós að virk lyfjaefni eru falin í fæðubótarefnum, þ.e. þeirra er ekki getið í innihaldslýsingu. Þegar upp kemst um svikin er varað við ólöglegri og hættulegri vöru t.d. í gegnum viðvörunarkerfi í hverju landi.

Oftast er um að ræða efnin tadalafil og sildenafil þegar vara er markaðssett sem kynörvandi fæðubótarefni eða sem lausn eða hjálp við ristruflun (e. dietary supplements for male sexual enhancement) en síbútramín, þegar vara er markaðsett sem hjálp við að léttast.

Tadalafil og sildenafil eru virk lyfjaefni í lyfseðilsskyldum lyfjum og eru ætluð til meðferðar við ristruflunum hjá fullorðnum karlmönnum. Lyfjaefni sem þessi ætti aldrei að nota nema í samráði við lækni þar sem þau geta verið skaðleg heilsu séu þau ekki notuð á réttan hátt. Síbútramín var virkt lyfjaefni í Reductil og öðrum lyfjum en efnið var afturkallað af markaði í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar árið 2010 vegna alvarlegra aukaverkana, sem einkum tengdust hjarta- og æðakerfi. Síbútramín átti ekki að vera á markaði.

Vörur eða fæðubótarefni sem innihalda falin lyfjaefni teljast ekki bara ólögleg matvæli heldur geta þau verið hættuleg þeim sem neyta þeirra og eru ekki meðvituð um efnin í matvælunum. Markaðsetning og innflutningur slíkra efna er með öllu óleyfilegur og þau ber að varast. Matvælastofnun hvetur neytendur til þess að vera á varðbergi gagnvart slíkum vörum, sem seldar eru á netinu eða á samfélagsmiðlum. Neytendur ættu að sýna aðgát áður en þeir kaupa vörur á netinu og vera ávallt vakandi fyrir því hvernig markaðsetningu er háttað. Athuga þarf hvort netverslun sé treystandi og vera gagnrýnin á vefverslun ef t.d. loforð  um kraftaverksárangur er of gott til að vera satt eða ef aðeins er hægt að kaupa vöru í tiltekinni netverslun eða í takmarkaðan tíma.

Váboð tilkynningar til Matvælastofnunar frá janúar til mars 2022:

Notification date

Dietary Supplements for

Name of the product

Undeclared substance

More information

 

 

 

 

 

16.3.2022

Male sexual enhancement

AVAPHINAL Maximum Male Enhancement sexual pills

Sildenafil

https://www.fda.gov/drugs/medication-health-fraud/public-notification-avaphinal-contains-hidden-drug-ingredient

18.2.2022

Weight loss

365 SKINNY High Intensity capsules

Sibutramine

 -

16.2.2022

Male sexual enhancement

RISE UP Red Edition capsules

Tadalafil

https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/positive-health-issues-voluntary-nationwide-recall-rise-red-edition-capsules-due-presence-undeclared

11.2.2022

Male sexual enhancement

MAC DADDY RED and PURPLE Dietary supplements

Sildenafil and/or Tadalafil

https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/abc-sales-1-inc-issues-voluntary-nationwide-recall-mac-daddy-red-and-mac-daddy-purple-capsules-due

10.2.2022

Male sexual enhancement

RED MAMMOTH capsules

Sildenafil and Tadalafil

https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/celebrate-today-issues-voluntary-nationwide-recall-one-lot-red-mammoth-due-presence-undeclared

9.2.2022

Male sexual enhancement

MEGMAN Performance Booster capsules

Tadalafil

https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/junp-llc-issues-voluntary-nationwide-recall-megman-performance-booster-capsules-due-presence

8.2.2022

Male sexual enhancement

THE RED Pills

Tadalafil

https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/your-favorite-shop-issues-voluntary-nationwide-recall-red-pill-capsules-due-presence-undeclared

10.2.2022

Male sexual enhancement

HARD DAWN RISE and SHINE capsules

Tadalafil

https://www.fda.gov/safety/recalls-market-withdrawals-safety-alerts/esupplementsales-llc-issues-nationwide-recall-one-lot-hard-dawn-due-presence-undeclared-tadalafil

 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?