Ákvörðun um skráningu vegna fiskeldis til Guðlaugs H. Kristmundssonar að Lækjarbotnum
Frétt -
10.04.2024
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 um um skráningarskylda aðila í fiskeldi hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Guðlaug H. Kristmundsson með fiskeldi að Lækjarbotnum, Hellu. Um er að ræða landeldi á bleikju í kerjum.
Guðlaugur H. Kristmundsson sótti um skráningu vegna 20 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á bleikju (Salvelinus alpinus). Umsókn um skráningu var móttekin þann 2. apríl 2024. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.