Fara í efni

Afríkönsk svínapest að breiðast út

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Afríkönsk svínapest er að brjóta sér leið úr austri til æ fleiri Evrópulanda. Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm í svínum, sem í flestum tilvikum veldur dauða. Sjúkdómurinn berst ekki í önnur dýr né fólk. Veiran sem veldur sjúkdómnum getur m.a. borist með sýktum svínum og sæði, hráu kjöti af sýktum dýrum, sem og farartækjum, búnaði, fatnaði o.fl. sem mengast hafa af veirunni. Smitdreifing til nýrra landa er oftast rakin til mætvæla og lifandi svína.

Sjúkdómurinn hefur verið til staðar í Rússlandi frá árinu 2007 og er nú landlægur þar. Georgía, Armenía, Azerbaídsjan, Úkraína og Hvíta-Rússland hafa jafnframt öll tilkynnt um tilfelli á undanförnum árum. Á þessu ári hafa svo tilfelli greinst í Lettlandi, Litháen og Póllandi, sem staðfest hefur verið að eru af völdum sama stofns veirunnar og er á ferðinni í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi. Mynd 1 hér að neðan sýnir útbreiðslu sjúkdómsins frá 2007 til 2014 og mynd 2 sýnir tilfellin á þessu ári. Eins og sjá má á myndunum er sjúkdómurinn einnig til staðar í Sardiníu en þar er um annan stofn að ræða. Mest er um sjúkdóminn í villisvínum og því mjög erfitt að hafa hemil á útbreiðslu hans. Umfangsmiklar sýnatökur og varnaraðgerðir eru í þeim löndum sem sjúkdómurinn hefur greinst.

Mjög mikilvægt er að fólk hafi þennan sjúkdóm í huga ef það er á ferðinni í þessum löndum og taki alls ekki með sér hrátt eða illa hitameðhöndlað kjöt hingað til lands eða til annarra landa sem eru laus við sjúkdóminn. Jafnframt er rétt að minna á að bannað er að fóðra dýr sem alin eru til manneldis á dýrapróteinum, að undanskildu fiskimjöli. Þetta á m.a. við um eldhúsúrgang sem kjöt getur leynst í. Dýraeigendur bera ábyrgð á að verja dýrin sín gegn sýkingum en það er á ábyrgð okkar allra að smitefni dýrasjúkdóma berist ekki til landsins.

Dreifing1

Mynd 1. Útbreiðsla afríkanskrar svínapestar í Evrópu frá 2007 til 2014.

Dreifing 2

Mynd 2. Tilfelli af afrískri svínapest sem tilkynnt hafa verið til OIE á þessu ári í Evrópu (ágúst 2014)

    • Grænir þríhyrningar tákna tilfelli sem gengin eru yfir í villtum svínum.
    • Appelsínugulir þríhyrningar tákna ný tilfelli í villtum svínum.
    • Bláir hringir tákna tilfelli sem gengin eru yfir í svínum á svínabúum.
    • Rauðir hringir tákna ný tilelli í svínum á svínabúum.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?