Fara í efni

Úflutningur sjávarafurða til 3. ríkja

Gerður er greinarmunur á útflutningi matvæla (dýraafurða) hvort sem varan er flutt til ríkis innan eða utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Í EES löndum gildir sama matvælalöggjöfin og því eru matvæli í frjálsu flæði innan svæðisins. Því þarf ekki opinbert heilbrigðisvottorð með dýraafurðum til EES ríkja. 

Kröfur sem gerðar eru um vottun vegna afurða sem fluttar eru til þriðju ríkja (landa utan EES) byggjast á skilyrðum sem viðkomandi móttökuríki gerir. Í sumum tilfellum hafa farið fram sérstakar viðræður á milli dýralæknayfirvalda á Íslandi og móttökuríkja og jafnvel úttektir hér á landi áður en skilyrði og vottorðaform eru útfærð.

Heilbrigðisvottorð vegna útflutnings fiskafurða til ríkja utan EES

  1. Heilbrigðisvottorð skulu að öllu jöfnu gefin út áður en sending fer frá Íslandi. Einungis er mögulegt að gefa út vottorð eftir að vara hefur yfirgefið landið ef til staðar er opinber hleðslustaðfesting fyrir viðkomandi sendingu, í því tilviki er tímafrestur þrír virkir dagar frá því sending yfirgefur landið. Útflytjendur skulu halda nákvæma hleðsluskrá (sbr. Hleðslustaðfestingu vegna útflutnings fiskafurða) yfir allar sendingar og skal hún liggja fyrir hjá útflytjanda og vera aðgengileg Matvælastofnun (MAST).
  2. Eftirlit með hleðslu sendinga skal framkvæma í samræmi við eftirlitsáætlun MAST um útflutning fiskafurða (LBE-099), þar sem kemur fram tíðni og framkvæmd eftirlits. MAST gefur út eftirlitsáætlunina í byrjun árs með skipulagi um fjölda hleðslustaðfestinga sem útflytjendur eru ábyrgir fyrir að láta framkvæma vegna útgáfu vottorða með sendingum sínum.
  3. Opinbert eftirlit með sendingu skal framkvæmt af MAST áður en vottorð er gefið út. Fyrir hverja sendingu til skoðunar skal útflytjandi fylla út hleðslustaðfestingu og senda ásamt fylgigögnum (sjá Hleðslustaðfestingu vegna útflutning fiskafurða / EBL-016 að ofan) til vottunar hjá MAST á utflutningur@mast.is.
  4. Umsækjandi heilbrigðisvottorðs fyllir út viðeigandi vottorð og sendir rafrænt til Inn- og útflutningsskrifstofu MAST. Afgreiðslutími heilbrigðisvottorða er á virkum dögum og skal vera a.m.k. 24 klst. Umsóknir sem berast fyrir hádegi kl. 8-12 verða afgreiddar kl. 8-12 daginn eftir. Umsóknir sem koma inn kl. 12-16 verða afgreiddar á tímabilinu kl. 13-16 daginn eftir. Styttri afgreiðslutími er mögulegur fyrir ferskar afurðir.
  5. Sendandi (Consignor) í heilbrigðisvottorði skal vera með kennitölu á Íslandi. Aðilar með kennitölu á Íslandi geti verið skráður sendandi í heilbrigðisvottorði fyrir hönd erlendra aðila.
  6. Umsækjandi fær afhent frumrit vottorðs . Skannað afrit er vistað í málaskrá Matvælastofnunar. Hægt er að óska eftir að fá skannað afrit sent með tölvupósti.
  7. Yfirtökuvottorð (Supersede certificate) er gefið út gegn gjaldi ef breytingar óskast á útgefnu vottorði.
  8. Tilbúin vottorð verða sett í móttöku á sviði markaðsmála að Dalshrauni 1b (3. hæð) í Hafnarfirði, þar sem hægt verður að nálgast þau eða fá þau send í almennum pósti skv. beiðni.
  9. Kostnaður vegna ofangreinds, þ.m.t. eftirlitmeð hleðslu sendingar og útgáfa vottorða greiðist af útflytjanda.

Vottun fiskafurða með erlendan (EES) uppruna

Matvælastofnun getur gefið út heilbrigðisvottorð að uppfylltum tilteknum skilyrðum vegna sjávarafurða sem landað er á Íslandi af vinnsluskipum sem hafa uppruna í ríkjum sem samningar ESB/EES ná yfir. Slík vottun er möguleg á forsendum EES samningsins og matvælalöggjafar ESB og byggir á reglugerð nr. 234/2020 um opinbert eftirtlit (EC/2017/625).

Dæmi um pre-export vottorðaform sem yfirvöld í upprunalandi geta notað í þessum tilgangi:

 

Uppfært 30.01.2023
Getum við bætt efni síðunnar?