Fara í efni

Skráargatið innleitt á Íslandi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í dag var Skráargatið innleitt á Íslandi þegar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra undirritaði reglugerð um norræna Skráargatið. Markmiðið með Skráargatinu er að neytendur geti á einfaldan hátt valið hollari matvöru.

                Einfalt að velja hollara

Matvælastofnun og Embætti landlæknis standa sameiginlega á bak við Skráargatið og hafa unnið að innleiðingu þess. Um er að ræða opinbert samnorrænt merki sem finna má á umbúðum matvara sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi innihald næringarefna: 

  • Minni og hollari fita
  • Minni sykur
  • Minna salt
  • Meira af trefjum og heilkorni

Skráargatið auðveldar hollara val og þar með að fara eftir opinberum ráðleggingum um mataræði því vörur sem bera merkið eru hollari en aðrar vörur í sama flokki sem ekki uppfylla skilyrði til að bera merkið. Matvælaframleiðendum er frjálst að nota Skráargatið á sínar vörur, uppfylli þær ákveðin skilyrði varðandi innihald næringarefna. Auk þess að vera upplýsandi fyrir neytendur hvetur merkið matvælaframleiðendur til að þróa hollari matvörur og stuðlar þannig að auknu úrvali á hollum matvælum á markaði. Það er hlutverk Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga að fylgjast með að farið sé eftir reglum um notkun merkisins.

Nú er „einfalt að velja hollara“ – kynntu þér málið á skraargat.is!

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?