Fara í efni

Músagangur - hvaða aðferðir við aflífun meindýra samrýmast lögum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Úr lögum a nr 55/2013 um velferð dýr: "Við eyðingu meindýra er óheimilt að beita aðferðum sem valda þeim óþarfa limlestingum eða kvölum. Tryggja skal að útrýmingarefni valdi ekki tjóni á öðrum dýrum en meindýrum".

Nú berast víða af landinu fréttir um óvanalega mikinn músagang í húsum. Vill Matvælastofnun af því tilefni ítreka ábendingar frá 2017 sem fjallaði um föngun og aflífun meindýra. Stofnunin vill sérstaklega árétta að notkun límbakka og drekkingargildra brjóta gegn ákvæðum laga um velferð dýra. Sömuleiðis er rétt að benda á að samkvæmt villidýralögum má aðeins veiða hagamýs innandyra. Því er óheimilt að bera út eitur eða nota músagildrur fyrir hagamýs utanhúss.

Vandaðar felligildrur tryggja yfirleitt skjóta aflífun með sem minnstum sársauka en lykilatriði er að vitja þeirra daglega, bæði til að aflífa þau dýr sem e.t.v. lentu ekki rétt í gildrunni og til að ganga úr skugga um að hún sé virk. Svokölluð músahótel, einnig af sumum kallaðar "lífgildrur", eru gildrur sem miða að því að fanga mýsnar án þess að valda þeim skaða. Með slíkum gildrum þarf einnig að hafa daglegt eftirlit til að aflífa mannúðlega þær mýs sem þar lenda (t.d. með kröftugu höfuðhöggi) eða sleppa þeim lifandi út.  Það brýtur í bága við lög um velferð dýra að láta mýs vera lengi í slíkri gildru og jafnvel svelta í hel.

Frétt frá 2017: Músagangur og aflífun meindýra - hvað samræmist lögum

Úr fréttainnslagi RÚV: Bannað að nota gildrur sem kvelja og limlesta | RÚV (ruv.is)  

Ítarefni:

Lög nr 55/2013 um velferð dýra http://www.althingi.is/lagas/147/2013055.html

Lög nr 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum  http://www.althingi.is/lagas/nuna/1994064.html

 


Getum við bætt efni síðunnar?