Fara í efni

Þvottabjörn á Reykjanesi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þvottabjörn fannst við Hafnir á Reykjanesi í byrjun vikunnar. Matvælastofnun hefur sent dýrið í sýnatöku og krufningu til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

Rannsakað verður hvort þvottabjörninn hafi borið dýrasjúkdóma með sér til landsins. Hundur sem komst í snertingu við dýrið hefur verið settur í einangrun á heimili sínu og sýni tekið úr honum.

Ekki er vitað hvernig þvottabjörninn barst til landsins. Innflutningur á þvottabjörnum er með öllu óheimill. 


Getum við bætt efni síðunnar?