Fara í efni

Tafir á ársuppgjöri stuðningsgreiðslna til sauðfjárbænda

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Búnaðarstofa Matvælastofnunar vill koma á framfæri að óviðráðanlegar tafir hafa orðið á uppgjöri á heildarframlagi til sauðfjárbænda vegna ársins 2017 og fyrstu greiðslu beingreiðslna á árinu 2018 miðað við það sem áður hafði verið gefið út. Beðist er velvirðingar á þessu.

Áhersla er lögð á að ganga frá þessu tvennu í þessari viku. Vísað er að öðru leyti í tilkynningu um málið frá 1. febrúar sl. og rétt að undirstrika að greiðslur verða engu að síður í fullu samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1183/2017 um stuðning við sauðfjárrækt.

Ársáætlun fyrir allar stuðningsgreiðslur til framleiðenda í sauðfjárrækt verður send til handhafa með rafrænu bréfi á Bændatorginu eigi síðar en 15. febrúar ásamt fyrstu greiðslu ársins 2018 skv. ofangreindri reglugerð.


Getum við bætt efni síðunnar?