Matvælastofnun kærir meint brot, meðal annars hótanir og ærumeiðingar, gegn starfsmönnum til lögreglu
Matvælastofnun hefur sent kæru til lögreglu og farið fram á rannsókn á meintum brotum einstaklings gegn almennum hegningarlögum. Kæran snýr meðal annars að hótunum um ofbeldi gegn starfsmönnum stofnunarinnar vegna starfa þeirra í tengslum við vörslusviptingu dýra.
Samkvæmt 106. gr. almennra hegningarlaga er refsivert að beita opinbera starfsmenn ofbeldi eða hótunum um ofbeldi við störf þeirra, eða reyna að hindra framkvæmd slíkra starfa. Slík brot geta varðað allt að sex ára fangelsi, en beita má sektum ef brot teljast smávægileg.
Einnig tekur kæran til meintrar háttsemi sem felst í töku búnaðar ófrjálsri hendi, hvatningu til refsiverðra verka og tilboðum um greiðslur til starfsmanna fyrir athafnir í þágu viðkomandi en þetta er í fyrsta skipti sem stofnunin kærir einstakling vegna slíks.
Þá hefur Matvælastofnun, fyrir hönd starfsmanna sinna, lagt fram kæru vegna meintra aðdróttana og ærumeiðinga.
Matvælastofnun leggur ríka áherslu á að allt ofbeldi eða hótanir um ofbeldi í garð starfsmanna stofnunarinnar eru með öllu óásættanleg og verða ávallt kærð til lögreglu.