Fara í efni

Kadmíum í bláskel

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á bláskel úr tveimur framleiðslulotum frá fyrirtækinu Íslensk bláskel og sjávargróður vegna þess að kadmíum mældist yfir leyfilegum hámarksgildum. Fyrirtækið hefur með aðstoð Matvælastofnunar innkallað vöruna af markaði.

Innköllun á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vöruheiti: Bláskel
  • Þyngd: 1 kg og 2,5 kg netapokar
  • Framleiðslulotur: Lota nr. 319 frá 16/8 2022 og lota nr. 320 frá 23/8 2022
  • Framleiðslufyrirtækið: Íslensk bláskel og sjávargróður, Skúlagötu 116, 340 Stykkishólmur
  • Dreifing: Verslanir Hafsins í Spöng og í Hlíðarsmára, Hafberg, Fiskerí á Sundlaugarvegi

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til verslunar þar sem hún var keypt.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?