Fara í efni

Jarðbönn og harðindi - Hygla þarf útigangshrossum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Bændur og aðrir umráðamenn útigangshrossa eru beðnir að huga vel að hrossunum nú þegar víða eru jarðbönn. Nauðsynlegt er að gefa útigangi við þessar aðstæður, sérstaklega fylfullum og/eða mjólkandi hryssum og ungviði. Útigangshross þurfa að vera í ríflegum holdum á þessum árstíma (holdastig 3,5-4) og hafa aðgang að skjóli. 

Héraðsdýralæknum berst nú fjöldi ábendinga um hross sem híma fóðurlaus í girðingum þar sem enga beit er að hafa. Umráðamenn hrossa er hvattir til að bregðast við og útvega hrossunum fóður eins og skylt er skv. landslögum.


Getum við bætt efni síðunnar?