Fara í efni

„Íslenskt lambakjöt“ sem verndað afurðarheiti

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur borist umsókn frá markaðsráði kindakjöts í Reykjavík þar sem sótt er um vernd fyrir afurðarheitið „íslenskt lambakjöt“ (e. „Icelandic Lamb“). Um er að ræða umsókn um vernd afurðarheitis skv. lögum nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

Sótt er um vernd sem vísar til uppruna sbr. 4.gr. laga nr. 130/2014. Skv. 2. mgr. 15.gr. sömu laga er heimilt að andmæla þessu afurðarheiti og afurðarlýsingu áður en endanleg ákvörðun er tekin um skráningu. Skal það gert innan tveggja mánaða frá birtingu þessarar auglýsingar eða fyrir 23. október 2017. Andmælum skal skilað skriflega til Matvælastofnunar á netfangið mast@mast.is. Afurðarlýsingu er að finna hér að neðan.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?