Fara í efni

„Íslensk lopapeysa“ er verndað afurðarheiti

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur samþykkt að heitið Íslensk lopapeysa – Icelandic Lopapeysa verði skráð sem verndað afurðarheiti með vísan til uppruna. Handprjónasamband Íslands sótti um vernd fyrir afurðarheitið.  Þetta er annað afurðarheitið sem hlýtur vernd hérlendis frá því að lög þess efnis tóku gildi árið 2015. Áður hlaut heitið „Íslenskt lambakjöt“ skráða vernd.

Auglýsing um skráninguna hefur verið birt á vef Stjórnartíðinda þar sem afurðarlýsing kemur fram.  Hverjum þeim sem framleiðir lopapeysu í samræmi við afurðarlýsinguna er heimilt að nota heitið Íslensk lopapeysa – Icelandic Lopapeysa og nota opinbert auðkennismerki skv. reglugerð um skráningu afurðarheita.

Sótt um vernd afurðarheitisins íslensk lopapeysa
Umsækjendur og lögfræðingur MAST við afgreiðslu umsóknar

Helstu skilyrði eru eftirfarandi:

  1. Ullin sem notuð er í handprjónaðar íslenskar lopapeysur skal vera klippt af íslensku sauðfé
  2. Í peysuna skal notuð nýull (ull sem ekki er endurunnin)
  3. Peysan skal vera prjónuð úr lopa, s.s. plötulopa, Léttlopa, Álafosslopa o.s.frv.
  4. Peysan skal hafa hringprjónað berustykki með munsturformum og/eða munsturbekkjum frá herða- eða axlalínu að hálsmáli
  5. Peysan skal vera handprjónuð á Íslandi
  6. Peysan skal vera prjónuð í hring án sauma (samsetningar)
  7. Peysan skal vera opin eða heil

Skráð afurðarheiti sem vísar til uppruna skal samkvæmt 6. gr. laganna njóta verndar gegn:

  1. Beinni eða óbeinni notkun í viðskiptum með afurð sem fellur ekki undir skráninguna, að svo miklu leyti sem sú afurð er sambærileg við þá afurð sem skráð er undir sama heiti eða ef notkun heitisins færir sér í nyt orðspor hins verndaða heitis, þ.m.t. þar sem afurð er notuð sem hráefni
  2. Hvers konar misnotkun, eftirlíkingu eða villandi hugrenningatengslum, jafnvel þótt raunverulegur uppruni afurðarinnar sé gefinn til kynna, eða þar sem hið verndaða heiti hennar er þýtt eða því fylgja orð á borð við „að hætti“, „í stíl“, „gerð“, „aðferð“, „eins og framleitt í“, „eftirlíking“ eða álíka og einnig þegar þessar afurðir eru notaðar sem hráefni
  3. Hvers konar öðrum röngum eða villandi merkingum sem sýna tilurð, uppruna, eðli eða helstu eiginleika afurðar á innri eða ytri umbúðum, í kynningarefni eða skjölum sem fylgja viðkomandi afurð og notkun umbúða sem geta gefið villandi mynd af uppruna hennar
  4. Hvers konar öðru athæfi sem villt getur um fyrir almenningi hvað raunverulegan uppruna varðar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?