Fara í efni

Grunur um lifrarbólgu A veiru í frosnum jarðaberjum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja um að Samkaup hafi, í samráði við heilbrigðiseftirlitið, ákveðið að innkalla af markaði frosin jarðarber frá COOP með strikamerkinu 7340011360377 þar sem grunur leikur á um að berin séu menguð af veiru sem veldur lifrarbólgu A. COOP matvælaframleiðandinn hefur í dag gripið til sams konar innköllunar í samráði við matvælayfirvöld í Danmörku og Svíþjóð.

  • Vöruheiti: „COOP Jordbær“.
  • Nettóþyngd: 500 g
  • Sölu- og dreifingaraðili: Samkaup, Krossmóa 4 230 Reykjanesbæ
  • Best fyrir merking: Allar dagsetningar
  • Umbúðir: Plastpokar
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Dreifing: Verslanirnar Nettó, Samkaup Strax, Samkaup Úrval og Kaskó.

Grunur hefur vaknað um að hluti framleiðslunnar hafi mengast af lifrarbólgu A veirunni. Ekki hefur verið sýnt fram á tilvist veirunnar í berjunum, en vegna tengsla milli faraldurs í Skandinavíu og neyslu berjanna hefur COOP ákveðið að innkalla vöruna í varúðarskyni. Neytendum er ráðlagt að skila vörunni til Samkaups eða viðkomandi verslunar. Nánari upplýsingar veitir Þorgeir Jónsson hjá Samkaup (thorgeir@samkaup.is).

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?