Fara í efni

Fuglaflensa í stokkönd og ótútskýrður fjöldadauði í ritum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Skæð fuglaflensa H5N1 greindist í stokkönd sem fannst í lok mars í húsagarði í Garðabæ. Niðurstöður bárust frá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum í gær. Þetta er fyrsta greining á skæðri fuglaflensu í ár. Hætta á smiti frá villtum fuglum í alifugla er álitin vera töluverð og því mikilvægt að allir sem halda alifugla gæti ýtrustu smitvarna, samanber fyrirskipun ráðherra frá mars 2022 sem er enn í gildi.

Frá því fyrir síðustu helgi hefur Matvælastofnun borist fjöldi tilkynninga um veikar og dauðar ritur og um eina dauða grágæs vestast á Seltjarnarnesi. Tilkynningar bárust sama dag einnig um fjölda veikra og dauðra rita í Keflavík. Síðan þá hafa daglega borist tilkynningar um fjölda dauðra rita við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi og á stærra svæði vestanvert á Reykjanesi. Aðspurt segist fólk ekki sjá veikindi í öðrum fuglategundum og ekki heldur dauða fugla af öðrum tegundum á þessum slóðum. Á báðum stöðum voru tekin sýni, en ekki fundust fuglaflensuveirur í þeim samkvæmt niðurstöðum sem bárust frá Keldum í gær. Sýni var einnig tekið úr grágæsinni sem fannst fyrir helgi á Seltjarnarnesi og fuglaflensa greindist ekki heldur í henni. Það er því óljóst hvað veldur þessum skyndilega mikla dauða, en málið er í rannsókn og frekari sýni verða tekin.

Matvælastofnun biður almenning áfram um að upplýsa stofnunina um fund á veikum og dauðum villtum fuglum. Frá þeim svæðum þar sem áberandi dauði er í ritum er æskilegt að fá tilkynningu ef aðrar tegundir en ritur finnast, svo hægt sé að taka frekari sýni og til að kanna útbreiðslu dauða í mismunandi fuglategundum.

Ítarefni

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um fuglaflensu


Getum við bætt efni síðunnar?