Fara í efni

Engin riða greindist í heilasýnum úr sauðfé sem slátrað var haustið 2025

Nú er rannsóknum á heilasýnum sem tekin voru í sláturhúsum um land allt haustið 2025 lokið. Rannsóknirnar fóru fram hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og engin sýni greindust jákvæð með tilliti til riðu.

Einungis eitt riðutilfelli hefur því greinst á árinu 2025, en það var í Skagafirði í september síðastliðnum. Greindist það í kind sem sýndi grunsamleg einkenni heima á bæ. Niðurskurður fór fram fljótlega eftir greiningu. Ekki liggur enn ljóst fyrir hversu margar kindur á bænum voru með riðu, þar sem rannsóknum á þeim sýnum er ekki lokið.

 

Ítarefni

Frétt  - Staðfest riðutilfelli á Kirkjuhóli

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um riðu

Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu


Getum við bætt efni síðunnar?