Fara í efni

COVID-19 og eftirlit í matvælafyrirtækjum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli á breyttu fyrirkomulagi eftirlits stofnunarinnar með matvælavinnslum þar sem áhersla er á rafrænar lausnir. Með þessu vill stofnunin fyrirbyggja að eftirlitsheimsóknir geti leitt til frekari útbreiðslu kórónaveirunnar milli fólks. 

Reglubundið eftirlit mun fylgja eftirlitsáætlun. Til að koma til móts við óskir framleiðenda um takmarkaðan aðgang að fyrirtækjum og vegna smithættu verður leitast við að hluti eftirlits fari fram í fjarfundarbúnaði eða á annan sambærilegan hátt með rafrænum lausnum. Þar með næst að staðfesta að þær fyrirbyggjandi aðgerðir í matvælafyrirtækjum sem er ætlað að tryggja öryggi matvæla séu virkar nú sem áður. Þess er vænst að fyrirtæki leggi fram þau gögn sem óskað er eftir af hálfu eftirlitsmanns.

Um leið og aðstæður leyfa mun eftirlit fara fram á hefðbundinn hátt.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?