Fara í efni

Aðskotahlutur í hrásalati

Matvælastofnun varar við notkun á einni lotu af hrásalati frá Þykkvabæjar ehf. vegna þess að aðskotahlutur fannst í einu boxi af vörunni. Þykkvabæjar ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands innkallað framleiðslulotuna. 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Þykkvabæjar ehf.
  • Vöruheiti: Hrásalat 400 g box
  • Best fyrir: 21.11.2025 og 22.11.2025
  • Strikamerki: 5690599003473
  • Nettómagn: 400 g
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Dreifing: Verslanir um allt land

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru er bent á að neyta hennar ekki heldur farga vörunni eða skila í verslun þar sem vara var keypt eða í vöruhús Þykkvabæjar, Austurhrauni 5, 210 Garðabæ.

Þykkvabæjar biður neytendur velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu getur skapast. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum má hafa samband við Þykkvabæjar ehf. í sími 564-1155 eða netfang thykkvabaejar@thykkvabaejar.is

Ítarefni: 


Getum við bætt efni síðunnar?