Að gefnu tilefni, tilkynning frá Matvælastofnun: Framlínustörf Matvælastofnunar og áreiti viðskiptavina
Undanfarið hefur starfsfólk stofnunarinnar orðið fyrir óvenjulega miklu áreiti, hótunum og ærumeiðingum, þar sem settar eru myndir af starfsfólki og það nafngreint á samfélagsmiðlum og jafnvel í einstaka fjölmiðlum. Þessi atvik tengjast einkum og sér í lagi afskiptum Matvælastofnunar af dýrahaldi og beitingu þvingunarúrræða þar sem brotið er á velferð dýra. Því miður hefur áreitið gengið það langt að sumt starfsfólk upplifir sig ekki öruggt heima hjá sér. Dæmi eru um að starfsfólk hafi sett upp öryggiskerfi á heimilum sínum og óttast jafnvel um börn sín. Þá hafa jafnframt fjölskyldumeðlimir starfsfólks sem vinnur að krefjandi málum fengið skilaboð um nætur sem eru uppfull af ógnandi og óviðeigandi texta. Augljós tilgangur þeirrar háttsemi er að hræða starfsfólk og ógna því í þeirri von að það hafi áhrif á framgang mála. Stofnunin lætur á engan hátt undan slíkum þrýstingi og allar hótanir gagnvart starfsfólki Matvælastofnunar eru teknar mjög alvarlega og verða umsvifalaust kærðar til lögreglu. Ábyrgð á því alvarlega ástandi sem leitt hefur til afskipta stofnunarinnar af dýrahaldi liggur alfarið hjá viðkomandi umráðamönnum og eigendum dýra.
Matvælastofnun hefur mikilvægu hlutverki að gegna gagnvart meðal annars dýravelferð, dýraheilsu og matvælaöryggi. Lög um velferð dýra og afleiddar reglugerðir leggja ríkar skyldur á herðar umráðamanna dýra að tryggja fullnægjandi aðbúnað og umhirðu dýra og Matvælastofnun ber að hafa eftirlit með að svo sé, ella grípa inn dýrunum til hjálpar. Almenningur má treysta því að íþyngjandi stjórnsýslu- og þvingunarúrræðum, á borð við vörslusviptingu dýra, er ekki beitt af léttúð eða að ástæðulausu. Þegar slík úrræði eru nýtt hafa önnur og vægari úrræði, líkt og úrbótafrestir eða dagsektir, jafnan verið reynd til þrautar án árangurs. Þvingunarúrræði byggja ávallt á staðfestum, sannanlegum og alvarlegum eða ítrekuðum brotum á lögum og reglugerðum um dýravelferð.
Stofnunin er bundin ríkri þagnarskyldu um málefni einstaklinga. Þegar málsaðilar kjósa að fjalla um mál sín á opinberum vettvangi er málflutningurinn oft mjög einhliða og jafnvel villandi þar sem lykilupplýsingum í málinu er haldið til baka. Dæmi eru um að umfjöllun um afskipti stofnunarinnar af einstaka málum sé slitin úr samhengi og jafnvel sett fram ósannindi. Tilgangurinn virðist vera að grafa undan störfum stofnunarinnar, sverta mannorð starfsfólks og afvegaleiða opinbera umræðu um málið. Vegna þagnarskyldunnar getur stofnunin ekki stigið fram og leiðrétt slíka upplýsingaóreiðu með því að birta gögn mála, líkt og eftirlitsskýrslur eða ljósmyndir sem staðfesta illa meðferð, nema viðkomandi málsaðili veiti skriflegt og ótvírætt samþykki fyrir birtingu gagnanna.
Þeir aðilar sem eru ósammála stjórnsýsluákvörðunum Matvælastofnunar hafa skýr úrræði til að leita réttar síns. Þannig eru ákvarðanir stofnunarinnar kæranlegar til Atvinnuvegaráðuneytisins og eins er hægt að bera mál undir umboðsmann Alþingis eða leita til dómstóla. Að ráðast persónulega á starfsfólk stofnunarinnar er ekki leið sem kemur til með að hafa áhrif á framgang mála og slík háttsemi verður ekki til þess að dregið sé úr kröfum um að lögum og reglugerðum um dýravelferð sé fylgt, enda lágmarksréttindi dýra sem þar eru sett fram.
Við hjá Matvælastofnun vitum að við erum oft eina bjargráð dýra í neyð. Störf eftirlitsfólks stofnunarinnar eru afar erfið í eðli sínu. Það er erfitt að verða vitni að þegar illa er farið með dýr með einhverjum hætti. Eftirlit sem kemur upp um slíkt getur jafnframt vakið hjá umráðamanni dýrs erfiðar tilfinningar. Sem betur fer sjaldgæf viðbrögð, en einstaka aðilar beina þeim erfiðu tilfinningum að ósekju með að ráðast á boðberann. Starfið sem er krefjandi fyrir, verður enn erfiðara og óásættanlegt er fyrir starfsfólkið ef að auki er ráðist á það í starfi sínu, því ógnað eða það verður fyrir alvarlegum ásökunum og ærumeiðingum fyrir það eitt að standa með dýrum. Slíkri hegðun má samfélagið ekki taka þátt í. Við hjá stofnuninni reisum skjaldborg fyrir okkar fólk sem sinnir þessu erfiða hlutverki og köllum eftir slíku hinu sama frá almenningi. Því öll viljum við standa vörð um dýr.