Fara í efni

Laust starf leiðandi sérfræðings - lyfjamál

Vilt þú stuðla að ábyrgri lyfjanotkun dýra?

Matvælastofnun óskar eftir að ráða að leiðandi sérfræðingi lyfjamála. Um fullt starf er að ræða sem felur í sér yfirumsjón verkefna sem tengjast forvörnum og eftirliti á sviði lyfjamála dýra á samhæfingarsviði stofnunarinnar. Um fullt starf er að ræða á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi eða annarri starfstöð stofnunarinnar utan höfuðborgarsvæðisins.

Matvælastofnun (MAST) er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is

 Helstu verkefni og ábyrgð  

  • Áherslur og eftirlit með lyfjamálum dýra
  • Upplýsingaöflun, áhættumat, úrvinnsla gagna og gerð fræðsluefnis
  • Umsjón með og þjálfun á gagnagrunninn Heilsa
  • Yfirsýn og eftirfylgni skráninga dýralækna
  • Afgreiðsla umsagna til Lyfjastofnunar
  • Erlent samstarf, þ.m.t. gagnaskil til Lyfjastofnunar Evrópu og Alþjóða dýraheilbrigðisstofnunarinnar

Hæfniskröfur 

  • Háskólamenntun á sviði lyfjafræði eða dýralækninga
  • Staðgóð þekking á dýralyfjum
  • Staðgóð þekking á stjórnsýslu og löggjöf um dýralyf og sjúkdómaskráningar
  • Góð tölvukunnátta ásamt þekkingu og reynslu af greiningu og framsetningu gagna
  • Frábær samskipta- og samstarfshæfni ásamt vilja til að starfa í teymi
  • Íslenskufærni málfar og ritun C2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum

Frekari upplýsingar um starfið 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Í boði er 36 stunda vinnuvika, fjarvinnumöguleikar allt að 2 daga í viku og ýmis hlunnindi eins og símastyrkur, heilsuræktarstyrkur ofl. Einnig búum við að öflugu starfsmannafélagi sem skipuleggur viðburði af og til.

Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá, afrit af prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2026

Sótt er um starfið á starfatorg.is

Nánari upplýsingar veitir


Getum við bætt efni síðunnar?